Matarkarfan - tilboð úr öllum helstu matvöruverslunum á Íslandi

Mæjónes blómabón

Majones-BlomabonEru plönturnar slapplegar? Nú er komin lausn á því sem dugir í vikur ef ekki mánuði: Mæjónes blómabón! Nuddaðu svolitlu af mæjónesi á hvert lauf með eldhúsþurrku. Blómin glansa á eftir.

Mæjónes fjarlægir vaxliti

Majones-VaxlitirHver hefur ekki lent í að krakkarnir krassa með vaxlitum á parketið? En ekki lengur. Berðu svolítið mæjónes á krassið og láttu standa í nokkrar mínútur. Þurrkaðu af með rökum klút.

Mæjónes á neglurnar

Majones-Gunnarsmajo2Eru neglurnar að plaga þig? Þá er mæjónes svarið. Ódýr leið til að styrkja neglurnar og mýkja er að maka mæjónesi á hverja nögl og láta vera á í 5 mínútur. Skola svo af með volgu vatni. Mæjónes minnkar líkur á annöglum.

Mæjónes andlitshreinsir

Majones-AndlitsbadMæjónesið er algjört undraefni þegar kemur að því að hreinsa dauðar húðflögur og mýkja húðina. Berðu mæjónes á andlitið og láttu standa í 20 mínútur. Þurrkaðu af og skolaðu afganginn af með vatni. Njóttu þess að vera til.

Mæjóneshárnæring

Majones-HarnaeringMaður fær varla betri hárnæringu en mæjónesið frá Gunnari. Nuddaðu mæjónesinu í hárið og settu plastfilmu, sturtuhettu eða sundhettu yfir og láttu standa í nokkrar mínútur. Skola að því loknu og hárið verður silkimjúkt og gljáandi.

FYNDNAR FJÖLSKYLDUMYNDIR - LJÓSMYNDASAMKEPPNI

Mikill gaur
Mu og mjá
Ullað og grett sig
Stórfjölskyldan
Klipping
Dömur á ferð og flugi
Kátir krakkar
Buslað í bústað
Slakað á í sveitinni
Daglegt líf Ellu - 3
17 nóv 2011
18 nóv 2011
17 nóv 2011
17 nóv 2011
09 des 2011
09 des 2011
17 nóv 2011
27 nóv 2011