• Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Fréttir og tilkynningar

Fitusogsafurð

Óvænt hliðarafurð fitusogsins hefur litið dagsins ljós: Stofnfruman. Ný tækni sem kynnt var nýlega gerir mönnum kleift að nálgast stofnfrumur sem leynast í fitunni. Vísindamenn við læknadeild Stanford-háskóla komust að því að fitufrumur á byrjunarstigi var auðvelt að gera að stofnfrumum.

Fitufrumurnar var auðveldara að gera að stofnfrumum (svokallaðar IPS-frumur) en húðfrumur sem fram til þessa hafa verið notaðar í þessum tilgangi. IPS-frumur eru þannig búnar til að genum er skotið í þær sem færa þær aftur í tíma, á frumstæðara og viðráðanlegra stig. Þaðan er þeim svo beint í aðrar áttir, til dæmis að verða hjartafrumur, beinfrumur, heilafrumur eða bara hvaða fruma sem er.

Hver hefði trúað því að fitusogið hefði á sér þessa óvæntu og ánægjulegu hlið? Ekki er óvarlegt að álykta að þeir sem bera utan á sér meiri forða en aðrir séu líka ríkari en aðrir. Verði þessi tækni almenn, verður þess ekki langt að bíða að fitan verði að söluvöru. Þannig geta menn safnað utan á sig verðmætunum í stað þess að leggja þau inn á bankabók eða brenna þeim strax við íþróttaiðkun.

Reuters

 

Poppkorn er hollt - eða hvað?

Nýjar rannsóknir virðast sýna fram á, að poppkorn sé meinholt þar sem sprunginn maís inniheldur mikið af andoxunarefnum, sem dregur úr myndum skaðlegra efna í líkamanum. Eru andoxunarefni talin vernda líkamann gegn m.a. krabbameini og hjartasjúkdómum.

Vísindamenn í Pennsylvaníu, sem gerðu rannsóknina, segja að mikið magn andoxunarefna í poppkorni stafi væntanlega af því að poppmaís er ekki unnin matvara. Því fylgi öll hollu efnin, sem finnast í maísnum með þegar hann er sprengdur.

Danska blaðið Jyllands-Posten ber þetta undir næringarfræðinginn Preben Vestergaard Hansen, sem vill ekki skrifa undir fullyrðingar um að poppkorn sé hollt. Það sé 501 hitaeining í 100 grömmum af poppi, nærri jafn mikið og í súkkulaði og kartöfluflögum og því sé þetta ekkert megrunarfæði.

Hann segir einnig, að vilji fólk borða poppkorn sé best að búa það til heima. Í örbylgjupopppokum sé um það bil 25 grömm af fitu í hverjum 100 grömmum af poppkorni en um 20 grömm ef poppkorn er búið til í potti.  Þá sé hluti af fitunni í örbylgjupoppkorni óhollar mettaðar fitusýrur en lagi fólk poppkornið heima geti það notað matarolíur sem innihalda ómettaðar fitusýrur.

„En ég mæli nú frekar með ávöxtum og grænmeti vilji fólk fá sér snarl,” segir Hansen.

Þessi frétt yljaði Matarkörfunni um hjartaræturnar vegna þess að hún er forfallin poppæta. Hún hallast að því að poppið sé holt. Það er að minnsta kosti mjög gott.

Morgunblaðið

 

Farsímaolnbogi

Farsímar hafa gert mönnum kleift að tala á ferðinni og vera í sambandi hvar sem er. Nútímalíf vort hefur sannarlega farið á fartina þökk sé farsímanum. En getur verið að þessum þægindum fylgi óþægindi - í olnboganum?

Ný könnun leiðir í ljós að nýtt fyrirbæri er orðið til: Farsímaolnboginn, en helstu einkenni hans eru verkur og doði í olnboganum. Fórnarlömb farsímaolnbogans eru einkum þeir sem tala mikið í farsíma. Tennisiðkendur sem tala mikið í farsíma eru í sérstökum áhættuhópi vegna þess að tennisolnbogi og farsímaolnbogi eru ekki góð blanda.

CNN

 

Gott kynlíf gerir þig að betri starfsmanni

Ný sænsk könnun sýnir fram á að gott tilfinninga- og kynlífssamband minnkar streitu í vinnunni umtalsvert.

Ann-Christine Andersson Arntén, doktorsnemi í sálfræði við Gautaborgarháskóla, gerði fimm ára rannsókn á áhrifum sambanda á streitu. Hún komst að þeirri niðurstöðu að einkalíf manna getur ýmist aukið eða minnkað streitu í vinnunni. Svo sem ekki óvæntar niðurstöður, en engu að síður gott að fá þetta svart á hvítu.

Reuters

 



....................................................................

Matark170X220Sparnadarrad