Þetta kaffi er ræktað í Villa Rica héraðinu við rætur Andes fjalla. Það er ræktað í skugga Inga trjáa og innan um fágæta fugla eins og páfagauka og lólibrífugla. Reynt er að rækta það á eins náttúruvænan hátt og hægt er, meðal annars með því að nota hýðið utan af kaffibaununum sem áburð.
Peru Villa Rica er meðalristað, hefur góða fyllingu og rjómakennt bragð.
SEPTEMBER 2010
Rauðrunna Mango
Koffeinlaust rauðrunnate með mangóbitum, blómum og jurtum. Dásamlegur haustdrykkur, bæði heitur og kaldur. Innihald: rauðrunnate, mangóbitar, bragðefni, sólblóm, jarðaberjalauf, frostþurrkuð ástaraldin og apríkósur.
FRÉTTABRÉF TE OG KAFFIS
Skoðið heimasíðu bændamarkaðs Frú Laugu til að sjá nýjustu tilboðin og vínsmökkun og allt sem er að gerast á þeim spennandi bænum.
Frú Lauga notar Snjáldru við að koma skilaboðum til viðskiptavina.
Matarkarfan hvetur alla til að gerast aðdáendur Frú Laugu.