Eru plönturnar slapplegar? Nú er komin lausn á því sem dugir í vikur ef ekki mánuði: Mæjónes blómabón! Nuddaðu svolitlu af mæjónesi á hvert lauf með eldhúsþurrku. Blómin glansa á eftir.
Sparnaðarráð
Mæjónes blómabón
Mæjónes fjarlægir vaxliti
Hver hefur ekki lent í að krakkarnir krassa með vaxlitum á parketið? En ekki lengur. Berðu svolítið mæjónes á krassið og láttu standa í nokkrar mínútur. Þurrkaðu af með rökum klút.
Mæjónes á neglurnar
Eru neglurnar að plaga þig? Þá er mæjónes svarið. Ódýr leið til að styrkja neglurnar og mýkja er að maka mæjónesi á hverja nögl og láta vera á í 5 mínútur. Skola svo af með volgu vatni. Mæjónes minnkar líkur á annöglum.
Mæjónes andlitshreinsir
Mæjónesið er algjört undraefni þegar kemur að því að hreinsa dauðar húðflögur og mýkja húðina. Berðu mæjónes á andlitið og láttu standa í 20 mínútur. Þurrkaðu af og skolaðu afganginn af með vatni. Njóttu þess að vera til.
Mæjónes á sólbruna
Sólin er yndisleg en hún á það til að brenna mann. Ef það gerist er rétt að nota Aloe Vera krem til að lina þjáningarnar. Ef Aloe kremið er ekki til má vel nota mæjónes. Það kælir húðina og heldur rakanum inni.
Mæjóneshárnæring
Maður fær varla betri hárnæringu en mæjónesið frá Gunnari. Nuddaðu mæjónesinu í hárið og settu plastfilmu, sturtuhettu eða sundhettu yfir og láttu standa í nokkrar mínútur. Skola að því loknu og hárið verður silkimjúkt og gljáandi.
Mæjónes losar límklessur
Hver kannast ekki við leifar af lími á speglum og rúðum? En ekki lengur. Makaðu mæjónesi á klessuna í stað þess að kaupa dýr efni til verksins. Nuddaðu mæjónesinu duglega á blettinn og þurrkaðu af með klút. Eftir stendur skínandi og límlaust yfirborð.
Mæjónes í sprungurnar
Makaðu mæjónesi í litlar sprungur í viðarhúsgögnunum og þurrkaðu svo yfir með klút til að fjarlægja auka mæjónes. Láttu standa í nokkra daga. Mæjónesið mun seyta olíu og prótínum sem gera það að verkum að viðurinn bólgnar og sprungan minnkar og verður næstum því ósýnileg!
Mæjónes lúsaeyðir
Þau sem vilja ekki nota eiturefni til að losa sig við lús, ef svo óheppilega vill til að hún tekur sér bólfestu í lubbanum ættu að nota mæjónes til þess. Nuddaðu mæjónesinu í hársvörðinn og settu sundhettu eða sturtuhettu á höfuðið áður en gengið er til náða. Þvoðu hárið morguninn eftir og greiddu það með fínkamba greiðu til að ná úr dauðum eggjum. Ef með þarf, endurtatku 7-10 dögum síðar.
Sítrónan gegn siggi og líkþorni

Sítrónubakstur sem hafður er yfir nótt á siggi eða líkþorni hefur mýkjandi áhrif. Legðu fimm millimetra þykka sítrónusneið á líkþornið og reifaðu. Ekki skemmir fyrir að bera örlítið af sítrónuilmkjarnaolíu með á líka. Gættu þess að bera olíuna eingöngu á líkþornið þar sem óblönduð olía er of sterk til að fara beint á heilbrigða húð.
Sítrónan vinnur á æðahnútum

Sítrónuolían er fyrirtaks mótefni á æðahnúta og sprungnar æðar í húðinni. Til að losna við sprungnar æðar skaltu nudda þær með tveimur til þremur dropum af sítrónuolíu út í jojoba- eða möndluolíu.
Gegn æðahnútunum er blandan svona: Sex dropar af sítrónuolíu, 50 millilítrar af hveitifrjóangaolíu, tveir dropar af grátviðarolíu og einiolíu. Nudda fæturna frá tám og upp, í sömu átt og blóðið rennur í þeim.
Æðastyrkjandi bað er svona: Átta dropar af sítrónuolíu, fjórir dropar af grátviðarolíu og ein matskeið af hunangi. Liggðu í baðinu í stundarfjórðung. Eftir baðið skaltu þurrka þér með því að klappa handklæðinu laust á skrokkinn, ekki strjúka vegna þess að þá fer olían af húðinni.
Sítrónan hjálpar meltingunni
Kreistu eina sítrónu út í glas af ylvolgu vatni og drekktu eftir hverja máltíð. Sítrónusýran hjálpar maganum að melta matinn.
Sítrónan gegn verkjum
Þótt bragðið af sítrónusafanum sé helst til súrt, hefur safinn engu að síður góð basísk áhrif á líkamann og varnar því að í honum safnist fyrir of mikið af sýru, sýru sem er að hluta til völd að gigt. Drekka skaltu safa úr nýkreistri sítrónu blönduðum út í volgt vatn þrisvar á dag ef þú finnur fyrir gigtverkjum. Við slæmum verkjum er rétt að kreista tvær sítrónur út í glasið.
Sítrónuolían hefur verkja- og bólgustillandi áhrif. Nuddaðu auma svæðið með nokkrum dropum af henni út í eina teskeið af jojoba olíu.
Sítrónan svæfir andvökuna
Nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að sítrónujurt (Melissa) í bland við róandi jurtir svo sem garðabrúða, humal og baldursbrá róar taugarnar og bætir svefn. Í nýrri hávísindalegri könnun var átján heilbrigðum sjálfboðaliðum gefnir tveir mismunandi skammtar af töflum (300 mg og 600 mg) unnum úr Melissu og einn skammt af lyfleysu. Skemmst er frá að segja að þeir sex sem fengu stóra skammtinn urðu minna óþolandi, yfirvegaðri og skarpari en hinir tólf.
Sítrónan gegn bitvargi
Þau sem ferðast á suðrænar slóðir hafa flest ef ekki öll kynnst moskítóflugunni eða öðrum úr hennar stórfjölskyldu. Ísland er blessunarlega laust við flest þessara kvikinda vegna þess að slíkar flugur eru kulvísar með afbrigðum.
Ef broddur pöddunnar sem stakk þig svo blygðunarlaust er enn í húðinni skaltu ná honum úr með flísatöng og nudda svo blöndu sem samanstendur af einum til tveimur dropum af sítrónuolíu og einni teskeið af hunangi á bitið.
Til að gera sig eins óaðlaðandi í augum bitvargsins og mögulegt er er ágætt að blanda tuttugu dropum af sítrónuolíu út í einn bolla af vatni og úða út í loftið með úðabrúsa. Ilmurinn er einstakur auk þess sem skorkvikindin flýja sem fætur og vængir toga.
Önnur aðferð er að væta baðmullarhnoðra í olíu og láta standa í svefnherberginu. Og ef setið er utandyra eftir að skyggja tekur er ógalið að bera á sig sítrónuilm þar sem klæði hylja ekki húðina. Bitvörn á húðina er búin til svona: Tíu dropar af sítrónuolíu út í þrjár matskeiðar af sólblómaolíu.













