Í tollafrumskógi, niðurgreiðslubákni, skattpíningu og háu flækjustigi koma frú Snjalla og herra Hagsýnn sterk inn – og leikurinn Leitin að ódýrustu máltíðinni.
Leikur eða keppni?
Er nema von þú spyrjir. Leikurinn er vitaskuld leikur, en líka keppni. Keppni sem miðar að því að spara og hafa gaman að því, án þess að líða vítamínskort.
Verðlaun?
Vegleg verðlaun í boði fyrir sigurvegarann. Tillögur verða lagðar fyrir matsnefnd sem reiknar út lægsta mögulega verð máltíðarinnar að teknu tilliti til næringarinnihalds. Það er sem sagt ekki nóg að leggja til soðinn götóttan sokk sem ódýra máltíð (verður að vera götóttur, annars er máltíðin of dýr). Máltíðin á að vera fyrir einn.
Fyrirkomulag?
Þrír flokkar eru í keppninni:
A) Morgunmatur
B) Hádegismatur
C) Kvöldmatur
Matarkarfan leggur til fyrsta réttinn í flokknum Morgunmatur: Hafragrautur.
Luma vinir Matarkörfunnar á tillögum að ódýrum en jafnframt hollum máltíðum? Sendið þær, annað hvort á Facebook eða í tölvupósti.












Twitter
Yahoo
Googlize this
Facebook

