Margir sjá varla fyrir sér hvernig hægt var að lifa án síma í vasanum fyrir nokkrum árum. Það var raunar ekkert mál og er ekki neitt mál í dag heldur. Þeir sem eru ekki á ferð og flugi vegna vinnu eða lífsstíls eru engu betur settir með síma í vasanum og himinháan reikning í póstkassanum. Hraðinn sem allt var að drepa 2007 er sjálfur dauður. Nú er hægt að slaka á, hringja í heimasíma, ræða um veðrið í stað verðbréfa og gróður í stað gróða. Svo er ekki galið að styðjast við Skype forritið sem áður hefur verið nefnt á þessum vettvangi. Það kostar sáralítið að hringja í heimasíma úr því og ekkert milli tölva.





Twitter
Yahoo
Googlize this
Facebook

