Tækninni fleygir fram á undra hraða. Nú er meira að segja hægt að fá forrit í iPhone-inn (væntanlegt í aðra síma ss. Blacberry, Android ofl.) sem er háþróuð útgáfa af gamla góða innkaupalistanum. Í forritinu, sem heitir Grocery Gadget, flettir maður upp vörutegundum í gagnagrunni og setur í innkaupalistann sinn. Hægt er að skanna strikamerki vara og fá þannig allar upplýsingar um þær beint í símann. Það er leikur einn að stofna nýjar vörur, eins og til dæmis skyr, sem ekki er í gagnagrunninum (útlendingarnir eru ekki enn búnir að átta sig á þeirri snilld nema í litlum mæli). Tegund umbúða, mælieiningu og verð er hægt að skrá og hafa þannig góða yfirsýn yfir innkaupin. Það er vitaskuld þægilegt að geta tekið slíkan rafrænan innkaupalista með í búðina og haka jafnóðum við þegar varan fer í innkaupakerruna.
Stór kostur við innkaupalistann er að það er hægt að taka mynd af vörunni, til dæmis eftirlætis sjampóinu sínu. Svo þegar makinn fer í innkaupaleiðangur er nánast útilokað að hann kaupi rangt sjampó vegna þess að hann hefur mynd af brúsanum í símanum (bjargar heimilisfriðnum jafnvel!). Annar eiginleiki forritsins er að hægt er að senda vörur á listann úr öðrum símum. Til dæmis ef það gleymdist að setja brauðrasp á listann og betri helmingurinn er farinn í búðina. Með einu handtaki er hægt að bæta brauðraspinu við innkaupalistann hans.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu fyrirtækisins. Forritið kostar fimm dali í iTunes búðinni (hægt er að fá einfalda útgáfu af því ókeypis).
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
















