Í sítrónunni er ákveðin sýra sem kennd er við sítrónuna sjálfa, nefnilega sítrónusýra. Sýran sú er fyrirtaks bólueyðir. Vættu fingur eða baðmullarhnoðra með ferskum sítrónusafa og berðu á bóluna áður en gengið er til náða. Láttu ekki á þig fá þótt það svíði undan safanum, það hverfur fljótt. Strjúktu svo yfir leifarnar af bólunni með volgum þvottapoka þegar þú vaknar.
Blandaðu saman sítrónusafa á móti sama magni af hunangsvatni (teskeið af hunangi út í bolla af volgu vatni). Berðu vökvann á bólótta svæðið og láttu vera á í hálftíma, tvisvar á dag, að morgni og kvöldi.



