Þegar flensu ber að höndum er sítrónan vopn á tveimur vígstöðvum, útvortis og innvortis. Innvortis í formi C-vítamínsins og útvortis í formi ilms sem hjálpar slímhimnunni í nefi og hálsi.
Þegar fyrstu einkenna verður vart, nefrennsli eða eymsli í hálsi, skaltu tvímælalaust dæla eins miklu C-vítamíni í skrokkinn og mögulegt er. Ef heppnin er með þér nærðu að kála vírusnum áður en hann nær að hasla sér völl. Drekktu hungangs og sítrónudrykkinn sem að ofan er nefndur á tveggja tíma fresti.
Við eymslum í hálsi skaltu blanda safa úr einni nýkreistri, einum bolla af volgu vatni og einni teskeið af salti saman. Gurglaðu þessu þrisvar á dag í mínútu í senn. Ef hálskirtlarnir eru bólgnir skaltu gurgla ferskum safa á tveggja tíma fresti í hálfa mínútu í senn. Hallaðu höfðinu aftur og láttu safann leika um hálsinn og kirtlana. Að því búnu skaltu kyngja honum svo safinn geti hafið baráttu gegn pestinni í formi C-vítamínsins.



