Þau sem ferðast á suðrænar slóðir hafa flest ef ekki öll kynnst moskítóflugunni eða öðrum úr hennar stórfjölskyldu. Ísland er blessunarlega laust við flest þessara kvikinda vegna þess að slíkar flugur eru kulvísar með afbrigðum.
Ef broddur pöddunnar sem stakk þig svo blygðunarlaust er enn í húðinni skaltu ná honum úr með flísatöng og nudda svo blöndu sem samanstendur af einum til tveimur dropum af sítrónuolíu og einni teskeið af hunangi á bitið.
Til að gera sig eins óaðlaðandi í augum bitvargsins og mögulegt er er ágætt að blanda tuttugu dropum af sítrónuolíu út í einn bolla af vatni og úða út í loftið með úðabrúsa. Ilmurinn er einstakur auk þess sem skorkvikindin flýja sem fætur og vængir toga.
Önnur aðferð er að væta baðmullarhnoðra í olíu og láta standa í svefnherberginu. Og ef setið er utandyra eftir að skyggja tekur er ógalið að bera á sig sítrónuilm þar sem klæði hylja ekki húðina. Bitvörn á húðina er búin til svona: Tíu dropar af sítrónuolíu út í þrjár matskeiðar af sólblómaolíu.



