Sítrónan svæfir andvökuna

Sitrona-PillurNokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að sítrónujurt (Melissa) í bland við róandi jurtir svo sem garðabrúða, humal og baldursbrá róar taugarnar og bætir svefn. Í nýrri hávísindalegri könnun var átján heilbrigðum sjálfboðaliðum gefnir tveir mismunandi skammtar af töflum (300 mg og 600 mg) unnum úr Melissu og einn skammt af lyfleysu. Skemmst er frá að segja að þeir sex sem fengu stóra skammtinn urðu minna óþolandi, yfirvegaðri og skarpari en hinir tólf.