
Fátt er einfaldara en að poppa sitt eigið popp í örbylgjunni. Það þarf ekki einu sinni að setja salt og smjör í pokann til að það poppist. Allt sem þarf er bréfpoki og baunir. Baunamagnið er valfrjálst í þessari uppskrift, bara setja það magn sem poppa á. Heimapopp er bæði ódýrara og hollara en örbylgjupoppið sem fæst út í búð. Hollara að því leyti að heimapopparinn stjórnar sjálfur hversu holla eða óholla olíu hann setur út á það. Sama á við um saltmagnið. Heimapopparinn er með valið og ábyrgðina sín megin.



