Þegar sturtuhengin verða ógeðsleg er samt ekki rétt að henda þeim. Þau eru fyrirtaks ábreiður á gólfin þegar málað er. Sturtuhengi er hægt að nota sem hlíf á framrúðuna á bílnum að vetri. Klipptu hengið þannig að það passar á framrúðuna og láttu segla halda því niðri að ofan og þurrkurnar að neðan (ef veðrið er ekki því vitlausara). Þá þarf ekki að skafa að morgni.
Sparnaðarráð
Sturtuhengi
Skókassar
Sagt er að kona geti aldrei átt of marga skó. Það er rétt. Sama gildir um skókassa, það er varla hægt að eiga of marga skókassa. Þeir hafa verið notaðir undir ástarbréf í þúsund ár. En það má nota þá undir ýmislegt annað sem þarf að geyma og spara stórfé við kassakaup í IKEA. Skókassar koma í öllum stærðum og gerðum og til að skapa heildarútlit er alveg óvitlaust að klæða þá alla með sama umbúðapappírnum og setja límmiða framan á með innihaldslýsingu. Svo er óvitlaust að nota skókassana til að geyma skó, já skó. Taka mynd af skóparinu og setja framan á kassann. Þá veistu hvaða par er í hvaða kassa og engir skór rykfalla. Skókassa má líka nota í skúffurnar til að skilja að nærbuxurnar frá brjóstahöldurunum og sokkunum.
Gamlir bolir
Þegar götin á gamla uppáhalds bolnum eru orðin fleiri en vötnin á Arnarvatnsheiði er kominn tími til að senda bolinn á eftirlaun. Það má til dæmis búa til kodda úr honum þar sem „Hitler's European Tour“ eða „Dark Side of the Moon“ snýr fram. Venjulega boli sem höfðu ekkert fram að færa í lifanda lífi er tilvalið að gera að tuskum í eldhúsinu. Það má klippa þá í tvær stærðir, litlar tuskur fyrir húsmóðurina og stórar tuskur fyrir húsbóndann. Þá una allir sáttir við sitt.
Gamlir stakir sokkar
Sokkar hafa tilhneigingu til að týnast, engu er líkara en það sé eitthvað kvikindi í sokkaskúffunni eða undir rúminu sem étur sokka og þá yfirleitt bara annan. Hvað á að gera við sokkinn sem ekki týnist? Það er margt, svo ekki henda honum alveg strax. Til dæmis má setja skrúfur eða annað smádót í þá eða klæða sig í þá utan yfir skóna til að hlífa þeim þegar verið er að bralla eitthvað sóðalegt eins og að búta sundur lík eða mála íbúðina.
Einnota kryddkvarnir
Margir halda að einnota kryddkvarnir sem fást í öllum betri matvöruverslunum séu í raun einnota. En þær eru ekki einnota nema síður sé. Það er lítið mál að opna þær og bæta við kryddi, til dæmis piparkornum, í þær. Kaupa til dæmis piparkorn í magni og bæta á kvörnina þegar þörf krefur. Einnota kvarnirnar eru að vísu hannaðar til að nota bara einu sinni svo það sé hægt að selja fleiri, en með kænsku og lagni má auðveldlega opna þær. Eina sem þarf er venjulegur eldhúshnífur eins og þeir sem notaðir eru til að borða með. Setja hann undir brúnina og spenna upp. Yfirleitt fýkur lokið og kvörnin þá af. Ef kvörnin er með leiðindi gæti verið sniðugt að hita plastið upp. Það mýkir það og gerir enn auðveldara viðfangs.
Eggjabakkar

Úr pappír
Þetta hafa tónlistarmenn vitað í áratugi: Eggjabakkar eru frábær hljóðeinangrun, þeir drekka bókstaflega í sig allt hljóð. Það má mála þá og festa á fyrirfram tilsagaðar plötur til að skapa stíl. Þótt ekki séu þeir fallegasta form í heimi, þá má vel nota þá sem ílát undir smádót eins og bréfaklemmur, hárteygjur, teygjur, skrúfur og svo framvegis.
Úr frauðplasti
Slíkir bakkar eru stórsniðugir til að frysta í allskonar matarskammta, til dæmis smákökudeig, kjötbollur, hvítlaukssmjör (eða bara hvaða kryddsmjör sem er). Eins og jógúrtdollurnar eru frauðbakarnir góðir til að sá í fræjum. Það má líka geyma golfbolta í þeim og smápeninga.
Rennilásapokar
Rennilásapokar eru yfirleitt sterkir og endingargóðir, en þeim er engu að síður reglulega hent, jafnvel eftir aðeins eina notkun. Oft er nóg að skola þá að innan, setja á rönguna meða þeir þorna, og nota svo aftur. Það þarf ekki endilega að nota þá undir mat, það má setja hvað sem er í þá. Til dæmis: 1) Sokkabuxur með miðanum af pakkanum með sem sýnir litinn. Það kemur í veg fyrir óreiðu í sokkaskúffunni. 2) Pökkunarpoka. Ef þú þarft að senda kassa með einhverju geturðu notað rennilásapoka sem einangrun. Blása í pokann með röri og loka. Gæti ekki verið einfaldara. 3) Setja mulinn ís í þá og geyma í frystinum þar til að tognun eða bruna kemur.
Tveggja lítra gosflöskur
Endurvinnslan er einn kostur, en það er annar kostur og hann er sá að nota gosflöskurnar til að halda leðurstígvélunum í formi. Stinga sinni flöskunni ofan í hvort stígvél og þau verða sem ný í áraraðir. Ertu á leiðinni til sólarlanda í sumar? Þá færðu ekki ódýrari ilskó en þá sem sjást á myndinni.
Þurrkukassar og eldhúsrúllur
Þegar þurrkurnar eru búnar, ekki henda kassanum vegna þess að það má setja plastpoka í hann og nota sem pokaskammtara. Eldhúsrúllan getur gert sama gagn og þurrkukassinn, það má vel troða plastpokum í hana og toga svo úr eftir þörfum. Ekki eins fallegt og þurrkukassinn en gegnir sama hlutverki.
Korktappar
Örlög korktappanna eru oft þau að vera fleygt í ruslið. Það er sóun vegna þess að þeir eru til marga hluta nytsamlegir. Það má til dæmis saxa þá niður og setja í blómabeð. Þeir drekka í sig raka í vætu og gefa frá sér raka í þurrki. Það má líka dýfa þeim í grillvökva og nota til að kveikja upp. Þau sem sækja sjóinn, til dæmis skútusiglarar og kafarar, ættu að búa til lyklakyppu úr korktappa því hún flýtur. Ef það lekur of hratt þegar hellt er úr ólífuolíuflösku eða bara hvaða flösku sem er, skerðu rás í korktappa og settu í stútinn. Þá er miklu auðveldara að stjórna flæðinu. Skerðu korktappa í sneiðar og límdu undir fæturna á húsgögnum. Það hlífir gólfinu. Skerðu mynstur út í toppinn á korktappanum og notaðu sem stimpla. Sneiddu sneið eftir endilöngum korktappanum og rás að ofan, þá ert komin með fyrirtaks miðaklemmu til að setja á nöfn gesta í næstu veislu (sjá mynd). Límdu korktappa í hring og þá ertu komin með hitamottu.
Jógúrtdollur og mjólkurfernur
Ekki henda jógúrtdollunni þegar þú hefur gætt þér á sykurlausu og vítamínbættu innihaldinu. Þeir sem eru með græna fingur vita að jógúrtdollurnar eru fyrirtaks pottar fyrir nýgræðlinga. Mjólkurfernur má klippa ofan af og nota sem framhaldsræktunarbeð þegar plönturnar hafa náð ákveðinni stærð. Á vorin er sérstaklega sniðugt að setja niður fræ, til dæmis fræ af sallati og öðrum jurtum sem gefa af sér æta ávexti.
Smjörumbúðirnar
Flestir taka utan af smjörstykkinu álpappírinn (eða hvað þetta nú er) og henda í ruslið. Bíddu nú aðeins við! Ekki henda því í ruslið, það er sóun á hæsta kvarða. Settu heldur pappírinnn í lítinn plastpoka og geymdu þar til næsti bökunardagur rennur upp og notaðu pappírinn til að smyrja kökuformin.
Þakrennugrænmeti

Hérna er sniðug og ódýr leið til að rækta grænmeti þar sem ekki er mikið pláss til ræktunar. Grænmetið verður að skrautblómum sem skreyta húsgaflinn. Hverjum hefur ekki dreymt um að borða upp úr þakrennunum? Nú er það hægt!
Frysta Aloe Vera

Á nútímaheimilinu kemur það ósjaldan fyrir að einhver brennir sig lítillega. Þá er gott að eiga aloe vera í frystinum. Að ekki sé talað um sólbruna.
Smákökuform

Þetta er góð hugmynd, svo má setja ís eða eitthvað góðgæti í smákökuformin.
Hjartalaga egg

Hvern hefur ekki dreymt um að fá hjartalaga egg í morgunmat en ekki fengið vegna þess að enginn vissi hvernig átti að gera það? En ekki lengur. Nú geta allir gert eggjalaga hjarta til að gleðja hjarta ástarinnar.
Fleiri greinar...



