• Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Um Matarkörfuna

Markmið matarkörfunnar eru eftirfarandi:

Markmið okkar er að auðvelda neytendum að nálgast tilboð í matvöruverslunum með því að kynna og lesa sér til á aðgengilegan og fljótlegan hátt á nýjustu matvöruverðstilboðin á einungis einni vefsíðu.  Margir eiga það til að henda tilboðsbæklingum og gleyma að athuga hvar góð tilboð er að finna o.s.frv.  Nú er það ekkert mál því nú er matarkarfan.is komin.

 

Hugmynd kviknar

Það var um það leyti er virðisaukaskatturinn á matvörum var lækkaður í 7% í mars 2007 að við félagarnir, Sigurgeir Orri Sigurgeirsson og Svavar Guðmundsson, fengum okkur, einu sinni sem oftar, gúllas í hádeginu. Umræðuefnið var virðisaukaskattslækkunin og hvort sú lækkun myndi skila sér í matarkörfuna.Við ræddum það fram og til baka, að það væri erfitt fyrir neytendur að átta sig á því, og að það væri ekki nægilega mikið gagnsæi á markaðnum. Við veltum fyrir okkur verðkönnunum og hvernig nýta mætti netið til að halda utan um þær, sýna þróun matarverðs og hvar væri hagstæðast að versla hverju sinni. Við spurðum okkur hvers vegna það væri engin dagvöruverslun á netinu og hvort slík verslun myndi ná fótfestu ef hún yrði sett á laggirnar.

Tilboðsbæklingar frá verslunum voru sérstalklega ræddir og hversu þægilegt það væri fyrir neytendur að það væri einn staður, vefsíða, þar sem öll tilboð frá kaupmönnum væru birt. Helgartilboðin, hátíðartilboð, þemadagar og svo framvegis. Þá kom upp sú hugmynd að það þyrfti að vera til vefsíða sem héti matarkarfan.is þar sem allar þessar upplýsingar væru samankomnar á einum stað. Og hér er hún: matarkarfan.is

 

....................................................................

Matark170X220Sparnadarrad