Besta maíssúpa mömmu Freyju
Besta maíssúpa mömmu Freyju 1-3 lítra af vatni 1-3 græmetissoðteninga eða kjúklíngasoðteninga 1-2 dósir af maisbaunum ódýrum
Matreiðsla Mauka maís niður með töfrasprota eða í blandara ásamt hluta af vatninu sem ætlað er í súpuna, afgangurinn af paprikunni, pastanu,kjúklingnum,svínakjötinu frá deginum áður eða það sem er til fyrir í kæliskápnum. Til dæmis gulrætur, graslaukur, hvítkál, blómkál, spínat eða basilíka. Salt og pipar eftir smekk. Þykkt upp með maísenamjöli eða vatns þynntu kartöflumjöli og látið malla við lágan hita í ca 8-10, mínútur :O)
Borið fram með brauði með bræddum ristuðum osti á úr ofni eða bara með ristuðu brauði.
Verði ykkur að góðu!
Kveðjur frá einstæðri, fátækri móður fjögurra barna, Freyja Dís Númadóttir.
Bragðgóður, ódýr og seðjandi kvöldmatur
Bragðgóður, ódýr og seðjandi kvöldmatur Einn pakki af kjúklinganúðlum keyptar í bónus. 1 bolli af nýrnabaunum (látið þær liggja í bleyti í klukkutíma og sjóðið svo í hálftíma). 1 bolli frosið blandað wok grænmeti.
Matreiðsla Allt sett á pönnu og steikt upp úr olíu. Undir lokin setjið örlítið af soyjasósu og örlítið af sweet chillisósu út í.
Vega Rós Guðmundsdóttir
Núðlur með ferskum afgöngum
Núðlur með ferskum afgöngum 2 pakkar núðlur (skyndi) mjög ódýrar Grænmeti eftir smekk og bara það sem til er í ískápnum: t.d. brokkolí, gulrætur, blómkál, paprika og sveppir Afgangar af kjöti ef til er Olía
Matreiðsla Sjóðið núðlurnar í ókrydduðu vatni í 2 mínútur (samkvæmt pakkanum). Steikið grænmetið uppúr olíu og hitið afgangin af kjötinu. Blandið núðlunum saman við grænmetið og kjötið í skál, fínt að setja smá smjörlíkisklípu út í. Einnig er gott að nota kryddið úr núðlupökkunum út á matinn.
Flokkur: kvöldmatur
Aðalheiður Davíðsdóttir
Þrír réttir í þrjú mál
Skrúfupasta með túnfiski Skrúfupasta Túnfiskur í olíu Paprika Rauðlaukur Salt og pipar Parmesan ostur
Matreiðsla Pastað soðið í saltvatni þar til al dente. Rauðlaukur og paprika skorin í bita og snöggsteikt í olíu á pönnu með salti og pipar. Túnfiskurinn settur á pönnuna örstutta stund til að hita hann í gegn. Heitt pastað sett saman við og hrært vel. Bragðað til með salti og pipar. Parmesan yfir ef vill. Borið fram strax.
Flokkur: Hádegismatur
---
Kjúklingaréttur og soðsúpa Hér er réttur sem skiptist í raun í nokkrar máltíðir fyrir einn. Súpan ætti að duga í tvo skammta en kjúklingarétturinn í fjóra til sex eftir því hve mikið grænmeti er sett í fatið. Svo er fínt að frysta þetta og henda í örbylgjuna þegar þörf er á. 1 heill kjúklingur í pott og ríflega af vatni. Soðinn með 2 kjúklinga- eða grænmetisteningum. Þegar soðinn í gegn er hann tekinn upp úr. Kjúklingaréttur Allt kjöt hreinsað af beinunum og skorið í bita. Léttsoðnar kartöflur og sætar kartöflur skornar í skífur og lagðar í botn á smurðu fati. Kjúklingurinn þar yfir. Grænmeti að vild yfir allt eftir því sem til er á heimilinu. Kaffirjómi, sýrður rjómi, dijon sinnep, sætt sinnep og smá dash af balsamic ediki hrært vel saman og bragðað til með salti og pipar. Hellt yfir fatið og inn í ofn á ca 180°C þar til vel heitt í gegn. Þá má setja ost yfir ef vill og stinga í ofninn í nokkrar mínútur þar til bráðinn. Þótt kartöflur séu í réttinum má alveg bera soðin hrísgrjón með honum. Það er bara betra. Soðsúpa Beinin sett aftur út í pottinn og allt látið sjóða niður í ca 30 mínútur. Síað vel og bragðað til með salti og pipar. Núðlur settar út í og látnar sjóða með soðinu þar til al dente. Ef til er afgangsgrænmeti í ísskápnum þá endilega setja það með út í pottinn. Borið fram með brauði og smjöri.
Flokkur: Kvöldmatur
---
Skyr með ávaxtabitum Gott er að eiga ávaxtabita í frysti og taka nokkra mola í einu í blandarann. Skera má niður appelsínur, banana, ferskan ananas, sítrónur, perur, epli, og hvað annað sem hugurinn girnist. Setja í venjulega plastpoka inn í frysti og taka svo eins og þarf í hvern skammt. Þarna er til dæmis fínt að nota banana sem farnir eru að dökkna og perur sem farnar eru að láta á sjá. Bragðið skilar sér alveg eftir mölun í blandaranum. Hrært skyr án bragðefna eða hrein AB mjólk Sykurlaus ávaxtasafi Ávaxtabitar úr frystinum Allt sett í blandara og hellt síðan í skál. Hollt musli út á, þ.e. ekki með sykri eða súkkulaðibitum
Flokkur: Morgunmatur
Verði ykkur að góðu! Björk Felixdóttir
|