Fyrir þá sem ekki vita er þessi réttur með vinsælustu barnaréttum heims. Óvitlaust að prófa á matvandna gríslinga. Snilldin við þessa uppskrift er sú að það má teygja hana og toga á alla vegu. Geita-, feta-, myglu-, gúda-, gotta-, parma-, Camebertostur út á. Bara velja það sem til er í ísskápnum. Einnig má setja tófú, kjötbita, ávaxtabita sem eldast meðan pastað sýður. Krydda eftir kenjum. Ljúffengur réttur tilbúin á örfáum mínútum.Uppskrift (fyrir 1)
½ bolli makkarónur
½ bolli vatn
½ teskeið salt
¼ bolli mjólk (sama hvaða)
¼-½ bolli rifinn ostur að eigin vali úr ísskápnum.
Aðferð
Blanda saman pastanu, vatninu og saltinu í örbylgjuhelda skál. Elda á hæsta styrk í 2 mínútur í senn þar til pastað er al dente. Hræra milli lota. Ætti að taka um 6-8 mínútur samtals. Ef pastað drekkur í sig allt vatnið áður en það er tilbúið, bætið 2 matskeiðum af vatni út á.
Hræra mjólkinni og ostinum samanvið. Hita á fullum styrk í hálfa mínútu í senn þar til osturinn er bræddur í rjómakennda sósu. Hræra á milli lota. Ætti að taka um 1 til 1-½ mínútu. Bæta við matskeið af osti og mjólk til að fá meiri sósu.
Út í réttinn má bæta söxuðum: Lauk, papriku, tómötum og kjöti og hvaða kryddi sem hugurinn girnist, til dæmis chili- og paprikukryddi.



