Lax eldaður í uppþvottavélinni er mikið lostæti. Margir vilja meina að uppþvottavélin varðveiti betur vítamínin sem eru í laxinum heldur en pottsuða eða ofnbökun.
Innihald
1 msk. ólífuolía
4 200 gr laxabitar
¼ bolli ferskur súraldinsafi (lime)
Salt og pipar
1 sítróna skorin í báta
2 álpappírsblöð um 30X30 sm að stærð.
Aðferð
1. Smyrja glanshliðina álpappírsblöðum með olíunni. Leggja 2 laxabita hlið við hlið á hvort blað. Brjóta upp á hliðarnar á álpappírnum til að varna leka og láta límónusafann drjúpa jafnt á bitana. Krydda með salti og pipar.
2. Brjóta álpappírinn saman þannig að úr verði 2 loftþéttir pakkar. Nota hugvitið, en ef það þrýstist vökvi úr þeim eftir að búið er að pakka, eru þeir ekki alveg þéttir.
3. Setja pakkana í efri hilluna á uppþvottavélinni. Stilla vélina á „Normal“ þvott.
4. Taka álpappírinn utan af og bera fram með sítrónubátunum.
Uppskriftin er fyrir fjóra, en vel má elda fyrir heila giftingarveislu með þessari aðferð.
Verði þér að góðu.
Innihald
Að rista hnetur í örbylgjunni er góð skemmtun, en hún krefst árvekni og lítilsháttar tilraunastarfsemi vegna þess að hnetur eru misstórar og ofnar mismunandi. Best er að elda þær á fullum styrk mínútu í senn, velta og halda svo áfram þar til þær eru orðnar ristaðar.
Fyrir þá sem ekki vita er þessi réttur með vinsælustu barnaréttum heims. Óvitlaust að prófa á matvandna gríslinga. Snilldin við þessa uppskrift er sú að það má teygja hana og toga á alla vegu. Geita-, feta-, myglu-, gúda-, gotta-, parma-, Camebertostur út á. Bara velja það sem til er í ísskápnum. Einnig má setja tófú, kjötbita, ávaxtabita sem eldast meðan pastað sýður. Krydda eftir kenjum. Ljúffengur réttur tilbúin á örfáum mínútum.
Innihald


