Tilkynningar

Myndapóstur og textapóstur

RugladurMadurFyrir þá sem gerast áskrifendur að Fréttabréfinu: Tölvupóstur er tvennskonar, fullur af stöfum annars vegar og fullur af myndum og stöfum hins vegar. Gaman er að fá myndir en þær geta verið þungar í vöfum, einkum fyrir síma og tölvur með eldri vöfrum.

Lang-lang-laaaangflestir geta tekið við myndum en þeir sem vilja fá textann eingöngu eiga að afhaka við þar sem stendur „Myndir já takk“.

Það er ekkert mál að breyta þessu vali síðar, með því að þrýsta á „Breyta áskrift“ í Fréttabréfinu sem þú færð frá okkur.

Samstarfsaðilar Matarkörfunnar

Samstarf við Rannsóknar-þjónustuna Sýni hf.

Mynd af áhöldum

Matarkarfan hefur hafið samstarf við Rannsóknarþjónustuna Sýni, sem m.a. býður upp á mjög góð matreiðslunámskeið þar sem einmitt er lögð áhersla á hagkvæmni í matargerð. Núna er því hægt að skipuleggja hagkvæm innkaup með hjálp matarkörfunnar og nýta matinn enn betur heima við. Matarkarfan hvetur fólk til að nýta sér þennan valkost.

Dæmi um matreiðslunámskeið sem er í boði.

Gagnlegir tenglar

Rannsóknarþjónustan Sýni býður uppá fjölbreytt matreiðslunámskeið
fyrir alla sem hafa áhuga á góðum mat og matargerð. Lögð er áhersla á hagkvæmni í hráefnavali og leiðir til að drýgja matinn á sem bestan hátt.

Leiðbeiningarstöð heimilanna er afar gagnleg vefsíða fyrir allar húsmæður og húsbændur. Leiðbeiningarstöðin veitir leiðbeiningar og ráð varðandi heimilishald, heimilisrekstur og heimilistæki.

Matgæðingurinn Friðrika Hjördís Geirsdóttir heldur úti skemmtilegri síðu með uppskriftum sem kitla bragðlaukana.

Cafe Sigrun er fullt af hollum uppskriftum, „sem innihalda ekki hvítt hveiti, ger eða hvítan sykur. Uppskriftirnar koma úr ýmsum áttum en eiga það allar sameiginlegt að vera hollar og vonandi góðar. Þó ég taki það ekki fram í uppskriftunum þá reyni ég alltaf að velja lífrænt ræktað eða framleitt hráefni í matinn minn.“ Segir Sigrún á síðu sinni. Sigrún er á Facebook, þar er hægt að gerast „aðdáandi“ alveg eins og það er hægt að gerast aðdáandi Matarkörfunnar.

Matarkarfan á Facebook. Gerist aðdáendur og fáið tilboðin send vikulega á Fésbókina.

Neytendastofa

Hagstofa Íslands

Græna matarkarfan

Graenm6Vöxtur grænu matarkörfunnar verður sífellt stærra hlutfall í matarvenjum og lífsstíl fólks. Nokkrir aðilar á matvörumarkaðnum sérhæfa sig í sölu á lífrænum og vistvænum hollustuvörum. Auk þess sem stór- og sérvöruverslanir hafa sett upp svokölluð „græn horn“ í verslunum sínum.

Spurning: Er lífrænt ræktað grænmeti hollara en annað og hvers vegna er það svona dýrt?

Svarið er á Vísindavefnum

Hér er listi yfir staði þar sem hægt er að kaupa lífrænt ræktaðan mat.

Biovörur

Lifandi markaður

Heilsuhúsið

Yggdrasill

Fræið í Fjarðarkaup